Færsluflokkur: Bloggar
Jæja þá
fös. 30.3.2012
Fyrir stuttu síðan ákvað ég að taka mér frí frá bloggi. Nú líkar mér fríið vel og get bara vel hugsað mér að hætta að blogga alfarið. Dóttir mín er að verða 6 ára og er hjá mér viku í senn aðra hvora viku, hún er orðin leið á að ég sé mikið í tölvunni og það eitt og sér er ærin ástæða :).
Einnig hef ég alltaf verið þeirrar lífsskoðunar að gott sé að breyta til öðru hvoru og aldrei stóð til að blogga til eilífðar. Satt best að segja þá má ég ekki lengur vera að þessu.
Ég hef kynnst mörgu skemmtilegu fólki hér í bloggheimum og sumum hef ég síðan kynnst í raunheimum.Ég hef fjallað hér um flest af þeim málum sem eru mér huglæg, innflytjendamál, málefni barna, menningarmál, efnahagsmál og síðast en ekki síst mál sem tengjast mínu starfi á sviði tónlistar.
Réttindi feðra og barna til þess að vera í jafnri búsetu og jöfnu forræði eru mér hvað hugleiknust í dag. Ég tel það slæmt að Ísland skuli hafa dregist aftur úr nágrannaþjóðum sínum á þessu sviði og veldur það mér vissum vonbrigðum að barnalöggjöf Íslendinga skuli ekki vera látin standast tímans tönn og hún uppfærð reglulega. Það er einnig hræðilegt að ekki skuli vera til staðar ríkisstjórn í landinu, sem veldur því að koma á raunverulegum réttarumbótum á þessu sviði. Það var nefnilega eitt sinn sú tíð að við montuðum okkur af því að standa öðrum framar í mörgu.
En sjálfur er ég heppin að hafa haft þrek og stuðning í kring um mig til þess að berjast fyrir réttindum barnsins míns og minna eigin. En það eru ekki allir í þeirri stöðu og mjög illa er komið fram við marga feður og börn þeirra í þessu efni í þessum töluðu orðum.
Að síðustu þá hafa stjórnmál verið fyrirferðamikil hjá mér og hef ég oft fjallað svo til alfarið um þau mál. En nú er komið að leiðarlokum á þessum vettvangi og þakka ég ánægjuleg skoðannaskipti og skemmtilegar stundir.
Bestu óskir.
g
Til hvers var Landsdómur ?
þri. 13.3.2012
Vitnaleiðslur hafa klárast í Landsdómi og ekkert sem hönd á festir hefur komið fram sem skoða má sem efni til sakfellingar yfir Geir H. Haarde. Síðastur gaf skýrslu Steingrímur J. Sigfússon, sem miðaði heilum stjórnmálaflokki, Vinstri Grænum, á sakborning.
Ekkert slíkt kom heldur fram í máli Steingríms og verður það að teljast mjög óeðlilegt að formaður stjórnmálaflokks, sem greiddi einróma atkvæði með málsókn gegn Geir H. Haarde í þinginu, skuli ekki bera fram neitt sem styður málsóknina í sinni skýrslugjöf fyrir Landsdómi.
Ráðherra bankaeigenda gefur skýrslu
mán. 12.3.2012
Málflutningur, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, er eins og súrealískt tragískt grínatriði.
-
Ingibjörg segist fyrst og fremst hafa einbeitt sér að efnahagsmálum í stóru samhengi, en ekki á fjármálakerfið sem slíkt.
-
Ingibjörg segir að Davíð hafi talað um bankastjórana sem „skúrka og hina verstu menn“ og það væri viðhorfið til þeirra út í heimi.
-
Var hún óánægð með ræðu Geirs sem hafði í henni lokað á alla möguleika á ESB-aðild sem hefði stækkað markaðssvæði íslenskra banka og um leið minnkað áhættuna fyrir Ísland.
-
Á þessum fundi hafði Davíð „hamskipti“, úthúðaði bankamönnum og fann þeim allt til foráttu. „Okkur setti hljóð á meðan“. Ingibjörg segist hafa séð Davíð í slíkum ham áður og reynslan kenndi henni að taka Davíð ekki trúanlegan þegar hann var í slíkum ham.
-
Ingibjörg segir allir hafi vitað um deilurnar milli Davíðs og eigenda Glitnis. Erfitt hafi verið að átta sig á hvað voru málefnaleg sjónarmið eða persónulegar skoðanir. Hún segist ekki hafa hafnað sjónarmiðum Davíðs, heldur tekið þeim með ákveðnum fyrirvara.
|
„Tók hamskiptum á fundi“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Baugur
mán. 12.3.2012
Gestur Jónsson, Lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, átti sinn þátt í að viðskiptaráðherra var ekki boðaður til fundar um þjóðnýtingu Glitnis í lok 2008.
Þetta kemur fram í máli Ingibjargar Sólrúnar. Gestur Jónsson hringdi í Ingibjörgu Sólrúnu og fáraðist yfir að hún væri ekki með Samfylkingarmann á fundinum.
Henni hafi þá fyrst verið hugsað til Össurar eða Jóhönnu Sigurðardóttur, núverandi forsætisráðherra.
Ég skil ekkert í henni að senda ekki bara Jóhönnu :)
Góðar fréttir
mán. 12.3.2012
Það er mjög ánægjulegt að heyra það að Jón Ásgeir, lyftarasnillingurinn sjálfur, ætli sér að byggja nýtt viðskiptaveldi fjarri Íslandsströndum.
Vonandi verður hann sér einnig út um lánsfé annars staðar en hér á landi. Það væri góð tilbreyting líklega heppilegast fyrir allt og alla.
|
Stefnir í rekstur á ný |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Samfylkingin á heimleið
sun. 11.3.2012
Það verður að teljast mikill barnaskapur að gera ráð fyrir þvi að forsetaembættið geti nokkurn tíman aftur orðið ópólitískt. Þarna staðfesta þau Kristrún Heimisdóttir og félagar hennar barnaskap sinn og einfeldni.
Þá er það tískufrasi að þykjast ekki skilja áhrif inngöngu í ESB á fullveldi þjóðarinnar. Samfylkingarkonan Kristrún, rétt eins og Samfylkingarmaðurinn Stefán Jón Hafstein, setja spurninguna fram samhljóða, þau fara bæði fram á að forseti skýri tengsl inngöngu við fullveldið.
Þetta er öflug áróðurstaktík, að gera grín að pólitískum andstæðingum sínum, gefa jafn vel í skyn að viðkomandi sé vitstola. Taktíkin dugir þó ekki í þessu máli. Flokkur þeirra Kristrúnar og Stefáns Jóns, Samfylkingin, er á leið frá völdum og þeirra helsta og jafnframt eina barráttumáli, verður hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu.
One trick pony
lau. 10.3.2012
Framlag Samfylkingarinnar til Forsetakjörs er Stefán J. Hafstein, einn helsti ráðgjafi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Stefán er fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Hann var einnig formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar frá 2001-2005, formaður borgarráðs og forseti borgarstjórnar.
Yfirlýsingagleði Stefáns í garð Ólafs Ragnars Grímssonar, í áskorun til forseta Íslands, minnir um margt á yfirlýsingagleði Ingibjargar Sólrúnar í garð Davíðs Oddssonar á sínum tíma. Hún ætlaði sér stóra hluti og sendi Davíð Oddssyni stríðshanskann. Einn af skjólstæðingum Ingibjargar á þessum tíma var athafnamaðurinn Jón Ólafsson og sakaði hún Davíð um að leggja fæð á Jón og fyrirtæki í hans eigu, hún ætlaði sér gegn Davíð persónulega.
Til að gera langa sögu stutta þá varð lítið úr yfirvöltun Ingibjargar en Stefán J. Hafstein var ráðgjafi hennar á þessum tíma. Nú ætlar Stefán Jón að endurtaka sama trikkið og sendir Ólafi Ragnari háværar yfirlýsingar. En jafn mælskur og Stefán J Hafstein telur sig vera, þá nægir það ekki til. Forseti þarf að hafa aðra og meiri hæfileika, sem láta bara ekki á sér kræla í yfirlýsingunni.
Fyrir það fyrsta þá sér Stefán J. ekki einu sinni ástæðu til þess að fela þá staðreynd að hann segir ekki aukatekið orð gegn sitjandi stjórnvöldum, þrátt fyrir að fjalla töluvert um stjórnmál í áskoruninni.
Í öðru lagi þá hefur hann ekki skilning á þýðingu þeirri sem innganga í Evrópusambandið hefði fyrir fullveldið. Louis Armstrong var eitt sinn spurður um hvað groove væri ? Hann svarað; "If you gotta ask, then you aint got it".
En Stefán J. Hafstein krefur forseta um svar við því hvaða hætta steji að fullveldi landsins. Fyrst hann veit það ekki, tja þá hefur hann lítið að gera í stól forseta. Kannski Stefán J. Hafstein þyrfti að lesa Hafréttarsáttmála Sameinuðu Þjóðanna til þess að fá svarið við spurningu sinni, alla vega þykir mér krafan um svar frá sjálfum forseta Íslands á opinberum vettvangi, vera svona eins og að fara fram á einkatíma í fótbolta frá Lionel Messi.
Hann fær náttúrulega svar. En þetta er bara ekki alveg rétt að farið og svarið verður í samræmi við það.
Endurbætur skipta máli, ekki gjaldmiðillinn
lau. 10.3.2012
Þessar gjaldmiðilspælingar hjá Lilju Mósesdóttur eru sannkallað rugl, mér þykir það leitt. Kanadadollar eða Sænsk króna er líka rugl, þó ívið meira vit í því heldur þessum NISK pælingum.
Til þess að gera einhverjar stórkostlegar breytingar á peningastefnunni þá þarf fyrst að fara hér í miklar endurbætur á öllu okkar regluverki, eftirlit verður að vera alveg skothelt og skuldir lágar. Hér þarf styrka efnahagsstjórn og starfhæfa ríkisstjórn.
En allar þessar hugmyndir ganga út á að fá einfalt fix á hlutina án þess að breyta neinu, áfram á að ana með sömu óstjórn í efnahagsmálum og spillingu í viðskiptalífinu. Skuldir á ekkert að vinna niður heldur einungis fleyta froðuna ofan af.
Mér finnst Sigmundur Davíð og þeir sem standa að þessari Kanadadollarspælingu ættu virkilega að snúa sér að því sem skiptir máli, það er ekki nýr gjaldmiðill heldur gagnsæi í viðskipalífinu og stjórnsýslunni.
|
Segir sænsku krónuna vænlegri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fábjáninn tjáir sig
lau. 10.3.2012
Forsætisráðherra sem segir íslensku krónuna vera stærstu ógnina við stöðugleika hér á landi, er haldin ólæsi í fjármálum og stjórnmálum og ætti að gera öllum greiða með því að pilla sér.
Í guðanna bænum kjósið nú eitthvað annað greyin mín í næstu alþingiskosningum. Samfylkingin er einangruð í ESB málinu eins og konan segir. ESB hefur engan áhuga á umsókn frá ríki þar sem að einungis einn flokkur stendur að umsókninni enda ber slíkt merki um lýðræðishalla.
Þá má einnig velta upp en einu sinni spurningunni um styrki ESB til kynningarstarfssemi hér á landi. Styrkirnir eru ólöglegir.
Fjárhagsstuðningur ESB við Samfylkinguna er einnig ólöglegur samkvæmt landslögum. Farðu frá Jóhanna Sigurðardóttir.
|
Samfylkingin ein með skýra ESB-stefnu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Jóhanna úti að aka
fös. 9.3.2012
Man hún bara ekkert, sat hún enga fundi, hlustaði ekki á nein viðvörunarorð frekar en Solla vinkona hennar ?
Er þessi saga ekki að verða svolítið þreytt ?
|
Davíð átti að vara okkur við |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


Augnablik - sæki gögn...
